• Holdanaut logo

Velkomin ađ Hálsi

Á Hálsi er staðsett verslunun Matarbúrið sem er sérverslun með ungneytakjöt. Við erum með fyrsta flokks nautakjöt til sölu, allir okkar gripir flokkast í hæsta gæðaflokk.

Í Matarbúrinu er einungis selt kjöt af holdagripum . Holdagripirnir okkar eru eingöngu fóðraðir á grasi .

 

Við bjóðum upp á alla hluta nautaskrokksins í Matarbúrinu og viljum að viðskiptavinir okkar fari ekki á mis við neitt þegar nautavöðvar eru annarsvegar.  Hægt er að kaupa kjöt í smáum sem stórum pakkningum. 

 

Undir hnappnum Fréttir er hægt að sjá hvað er á döfinni.
 
Háls er ekki einn um að framleiða vörur fyrir Matarbúrið. Við erum svo heppin að hafa fleiri framleiðendur í Kjós sem eru líka með holdanaut, bæirnir Kiðafell og Sogn eru einnig með úrvals nautakjöt sem framleitt er með holdanautum. 
 
Í Matarbúrinu er einnig ýmislegt annað til sölu en nautakjöt svo sem heimagerðar sultur, chutney og hlaup.
 
Endilega skoðaðu síðuna, smelltu á hnappana og hafðu óhikað samband ef þér finnst eitthvað vera freistandi.
                                                     Matarbúrið er líka á Facebook
Háls í Kjós|276 Mosfellsbćr|Sími 897-7017|www.hals.is|hals@hals.is
Opnunartími Matarbúrsins Föstudaga, 16:00 - 20:00|Laugardaga og sunnudaga 14:00 - 18:00