Fréttir
Engin hálka
14 Janúar 2012
Engin hálka á veginum upp í Kjós. Opið milli 14 og 18 í dag. Verið hjartanlega velkomin í sveitina.
Gleðilegt ár !
06 Janúar 2012
Jæja þá er tilraunin hafin, opið á laugardögum einungis þar til annað verður auglýst. Úrval af frosnum steikum og allskonar. Afsláttur af jólavörum. Verið velkomin í Kjósina.
Síðasti dagur ársins 2011
30 Desember 2011
Staðan á steikum er ekki góð hjá okkur svona í lok hátíðanna. Hakk, gúllas og hinir ýmsu gómsætu vöðvar til. en allt frosið.
Vika í jól
16 Desember 2011
Vika í jól og við komin með síðustu tvær kvígurnar í kistuna, allt til nema lund. Tvíreykta Sparikjötið frá Kiðafelli er líka til. Jólamauk og Jólaandi alveg að verða búið og hver að verða síðastur að ná sér í gjafaþrennu. Opið á Kaffi Kjós. Sjáumst
Minnum alla á BÆNDAmarkaðinn
09 Desember 2011
Við hvetjum fólk til að kíkja á Bændamarkaðinn Nóatúni 17 á morgun frá kl 12-16. Það verða næstum tuttugu aðilar með vörur í boði svo verður frábær stemning í boði og oxytocinið mun flæða um og skapa áður óþekkt á íslandi stressleysis og vellíðunarástand allra sem verða á svæðinu. Sigga frænka stendur vaktina í Matarbúrinu á morgun.
Útrás
05 Desember 2011
Matarbúrið ætlar að taka þátt í Jólamarkaði Búrsins, Beint frá Býli og Slow Food í Nóatúni 17. Markaðurinn er næstkomandi laugardag þann 10 des frá 12-16.
Við munum líka vera með opið hér heima og ég minni á að Kaffi Kjós er líka með opið.
Desemberopnun 2011
25 November 2011
Jæja þá er það orðið pottþétt við opnum föstudaginn 2. desember og höfum opið á okkar hefðbundnu opnunartímum . Það eru bara nokkrir gripir í boði þannig að á nýju ári lokum við aftur fram í ca mars april allt eftir því hvað gripirnir stækka hratt.
Við ætlum að hafa allt í boði og erum sveitt að vinna í því. Það verða allar gerðir af steikum í boði, Carpaccio, Nautabratwurst, jerky, nýjar uppskriftir af dásamlegum Pot roast réttum ofl. Jólaþrennan (jólamauk, plómu og heslihetu chutney og villibráðaber) og að sjálfsögðu miklu meira af sultum hlaupi og chutney. Jólaandi er nýjung hjá okkur en hann er af glöggkyni og er frábær til að koma sér í alvöru jólaskap.

